Saga fyrirtækisins
Um Ari Oddsson ehf.
Ari Oddsson ehf. var stofnað árið 1998 af Ara Oddssyni. Frá upphafi hefur alhliða múrverk verið meginstarf fyrirtækisins, en með tímanum hefur það einnig tekið að sér alverktöku þar sem allir verkþættir eru á einni hendi.
Fyrirtækið hefur sinnt fjölbreyttri húsasmíði, allt frá uppsteypu á fjölbýlishúsum til innréttingasmíði. Þjónusta við stofnanir, sveitarfélög og einkaaðila hefur alla tíð verið stór hluti af starfseminni.
Árið 2012 kom Ingi Björn Kárason, starfsmaður til margra ára, inn sem meðeigandi að fyrirtækinu.
Fagmennska í fyrirrúmi
